2

Main content

Fréttir

main

Hægt er að nálgast ýmsar nýjar og/eða endurbættar leiðbeiningar á þjónustuvef Landskerfis bókasafna, þar með taldar:

Tekin hefur verið saman greinargerð um söfnun tölulegra upplýsinga úr bókfræðigrunni Gegnis fram til loka árs 2008. Tölfræðin tekur til heildarskráningar í bókfræðigrunninn án tillits til einstakra aðildarsafna.

Greinargerðin er afrakstur samstarfs Landsbókasafns og Landskerfis bókasafna. Hún var unnin samkvæmt verkáætlun um gæðamál Gegnis á árinu 2009.

Skýrsla stjórnar Landskerfis bókasafna hf. lögð fram á aðalfundi 4. júní 2009, auk fundargerðar, hefur nú verið gerð aðgengileg á heimasíðunni.

Fertugasta og sjötta fundargerð skráningaráðs, frá 13. maí er komin á síðu skráningarráðs.

Fertugasta og fimmta fundargerð skráningaráðs, dagsett 15. apríl 2009 er komin á síðu skráningarráðs.

Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. var haldinn 4. júní 2009. Störf fundarins voru með hefðbundnum hætti. Á fundinn mættu fulltrúar 9 hluthafa sem eiga samanlagt 83,6% hlutafjár í félaginu. Í skýrslu stjórnar var m.a. fjallað um niðurstöður forgreiningarverkefnis um samþætta leitarvél fyrir Ísland. Verkefnið var unnið í samstarfi við Konunglega bókasafnið og Tækniháskólann í Kaupmannahöfn. Skýrsla stjórnar og fundargerð aðalfundar verður birt á heimsíðu félagsins á næstu dögum.

Stjórn síðasta starfsárs var endurkjörin á fundinum. Í...

Flóahreppur er genginn til liðs við hluthafa í Landskerfi bókasafna hf.

Bókasafn Flóaskóla er rekið á vegum sveitarfélagsins. Flóahreppur er í samstarfi við Bókasöfn Árborgar um þjónustu bókasafns fyrir almenning.

Flóahreppur er boðinn velkominn í hópinn!

Vakin er athygli á að glærur frá notendaráðstefnu Aleflis, hafa verið gerðar aðgengilegar á slóðinni Notendaráðstefna Aleflis 2009. Á fundinum voru m.a. haldin erindi um Gegni vítt og breitt, tölfræðiúrvinnslu bókfræðigrunns Gegnis, varðveislu rafrænna gagna auk kynningar á forgreiningarverkefni um samþætta leitargátt.

Uppfærslu þjónustupakka á Gegnir er lokið. Búið er að opna vefinn gegnir.is. Leiðbeiningar hafa verið sendar út á póstlista Landskerfisins. Þær verða einnig aðgengilegar á þjónustuvef. Mikilvægt er að starfsmenn bókasafna uppfæri biðlara í samræmi við leiðbeiningarnar.