Main content
main
Minnisblað fyrir skráningu í Fornleifaskrá
Cecilie Gaihede og Þorvaldur Böðvarsson, haust 2019
Inngangur:
Skráning fornleifa í Sarpi er tvíþætt. Til að geta skráð fornleifar verður fyrst að stofna Jörð eða Minjasvæði og eru fornleifarnar skráðar undir öðru hvoru. Fyrir frekari útskýringar er hægt að færa bendilinn á spurningamerkin sem birtast í skráningarsniðinu eða skoða Skráningarhandbók Sarps 2.0 sem er aðgengileg á þjónustuvef okkar á landskerfi.is.
Skrá Fornleif:
- Farið er í „Aðföng“ og valið „Fornleifar“.
- Smellt á „Stofna jörð/lóð“ eða „Stofna minjasvæði“ eftir því hvort á við. Valin er Undirskrá og Staður/Gata og er einnig hægt að tengja Minjasvæði ef það á við, sjá leiðbeiningar undir spurningamerkjunum sem birtast í skráningarsniðinu.
- Siðan er fornleifin skráð undir jörð/lóð eða minjasvæðinu.
![](https://landskerfi.is/sites/default/files/fornleifarmynd1_0.jpg)
Skráningarsnið jarðar
- Hér er hægt að skoða skráðar fornleifar og örnefnalýsingar á viðkomandi jörð. Sjá mynd:
- Valkvætt er að tengja minjasvæði við jarðarsniðið
- Lágmarksskráningar til að geta vistað aðfangasniðið eru: Undirskrá, Minjasvæði ásamt Staður/Gata Sjá mynd:
![](https://landskerfi.is/sites/default/files/fornleifarmynd3.jpg)
Skráningarsnið minjasvæðis
- Gefa verður minjasvæðinu heiti
- Hér listast upp jarðir/lóðir sem og skráðar fornleifar sem minjasvæðið er tengt í.
- Lágmarksskráningar til að geta vistað aðfangasniðið eru: Heiti, Undirskrá, ásamt Staður/Gata Sjá mynd:
Skrá Fornleif:
Skráning fornleifar fer ávallt fram undir jörð.
- Smellt er á „Skrá færslu“ í aðgerðastiku yfirlitsglugga fornleifa. Ef skrá skal margar fornleifar á jörðinni þá er hentugt að búa til hraðskráningarsnið. Sjá mynd:
![](https://landskerfi.is/sites/default/files/fornleifarmynd5.jpg)
- Skráningarsnið fornleifar opnast og það útfyllt eftir bestu getu. Ath. að sé hakað í reitinn Minjagildi þá birtist samnefndur flipi efst þar sem minjagildið er skráð. Sjá mynd:
![](https://landskerfi.is/sites/default/files/fornleifarmynd6.jpg)
print-links
![Printer-friendly version Printer-friendly version](https://landskerfi.is/sites/all/modules/contrib/print/icons/print_icon.png)