Main content
main
Skráningarráð
Hlutverk Skráningarráðs Gegnis er að fylgjast með og setja reglur um skráningu bókfræðiupplýsinga í Gegni með það að markmiði að tryggja gæði og samræmingu þeirra í kerfinu. Öllum sem skrá í Gegni ber að framfylgja mótaðri gæðastefnu og hlíta þeim reglum sem Skráningarráð setur. Allir skrásetjarar þurfa að skrá sig á póstlistann Vanda.
Ábendingum um villur í Gegni skal beina til ritstjóra Gegnis.
Skráningarráð Gegnis starfar á vegum Landskerfis bókasafna hf. sem skipar fjóra skráningarsérfræðinga í ráðið og setur því erindisbréf. Bókasafnsfræðingar tilnefndir af stjórn notendafélagsins Aleflis og Landsbókasafni eiga sæti í ráðinu.
Þann 6. júní 2023 var haldinn hugarflugsfundur um hlutverk og verkefni skráningarráðs Gegnis. Tilefnið var breytt vinnuumhverfi skrásetjara og annara sem sýsla með safnkost í nýjum Gegni (Alma) sem og breytingar í starfsumhverfi bókasafna. Landskerfi bókasafna stóð fyrir fundinum sem haldinn var Þjóðarbókhlöðu. Þátttakendum, sem voru tæplega fjörutíu talsins var skipt í fjóra hópa sem unnu með jafnmargar spurningar. Niðurstöður hópavinnunnar má finna hér.
| Skráningarráð Gegnis, frá 2023 | |
|---|---|
| María Bjarkadóttir | Borgarbókasafn | 
| Sigríður Vilhjálmsdóttur | Háskólinn á Akureyri | 
| Sigurgeir Finnsson | Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn | 
| Þorsteinn „Doddi“ Jónsson | Amtsbókasafnið á Akureyri, formaður | 
| Án atkvæðisréttar | |
| Kristin Lilja Thorlacius Björnsdóttir, fagstjóri íslenskrar skráningar og bókfræðistjórnar | Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn | 
| Sigrún Hauksdóttir, starfsmaður | Landskerfi bókasafna | 
Erindum um beitingu skráningarreglna skal beina til Skráningarráðs.
| Samþykktir | 
|---|
| 
 Upplýsingar um skrásetjara er að finna á þjónustugátt Landskerfis. Athugið að það þarf að vera innskráður á þjónustugáttinni til þess að skoða síðuna. https://gegnir.freshdesk.com/a/solutions/articles/103000354246?lang=is&portalId=103000091577 | 
fundir_skraningarrads-block
bc636f50e4c068fe7a7b9b003d67684c
horizontal
print-links
 
 
        