Main content
main
Rafgagnahópur 2013-2014
06.04.2016
Breytt umhverfi og ósamræmi í meðferð rafræns efnis leiddi til stofnunar rafgagnahóps í maí 2013. Hópurinn skilaði lokaskýrslu í júní 2014. Ákvarðanir um lýsigögn rafræns efnis voru á hendi margra hagsmunaaðila eins og skráningarráðs, gæðahóps Gegnis, SFX-verkefnahóps og því var nauðsynlegt að samræma verklag.
Hlutverk hópsins var að vega og meta ólík sjónarmið og hagsmuni varðandi meðhöndlun rafræns efnis og bera fram tillögur um meðferð lýsigagna.
Fulltrúar í rafgagnahópi | |
---|---|
Anna Sveinsdóttir | Náttúrufræðistofnun |
Birgir Björnsson | Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn |
Hildur Gunnlaugsdóttir | Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn |
Kristína Benedikz | Menntavísindasvið Háskóla Íslands |
Margrét Ásgeirsdóttir | Bókasafn Norræna hússsins |
Sigrún Hauksdóttir | Landskerfi bókasafna |
Telma Rós Sigfúsdóttir | Landskerfi bókasafna |
Þóra Gylfadóttir | Háskólinn í Reykjavík |